02apríl
New Yooork
Ó mæ ó mæ...ég er að fara til NY!!! Sjæse... Eftir 7 tíma fer ég í loftið...eftir 13 tíma verð ég að anda að mér amerísku lofti :) Ahh... Skrítin tilfinning. Ætlaði bara að henda inn einni stuttri færslu áður en ég yfirgef landið.Fór á geðveika tónleika í gær, FORMA-tónleikar til styrktar átröskunarsjúku fólki. Nokkrir spiluðu, m.a. Björk, KK, Lay Low, Mugison og Pétur Ben, og þeir tveir síðastnefndu voru sjúklega góðir!! Ég var alveg eftir mig þegar Pétur Ben var búinn að spila, svo kom Mugison á eftir og hann var geðveikur líka, svo enduðu þeir á að taka Murr Murr saman! Maður bráðnaði alveg :) Takk Helena fyrir að bjóða mér ;) (þú misstir samt af frekar miklu, verð ég að segja!!)
Fór líka um daginn á GusGus tónleikana þar sem Petter & the Pix voru að hita upp, Petter og félagar voru góðir en rokkuðu samt öll lögin sín upp og ég var ekki alveg að fíla það eins vel... Svo hlustuðum við á ca 1 lag með GusGus og vorum þá komin með nóg og létum okkur hverfa. Verð bara að fara einhverntímann á tónleika þar sem Petter spila bara einir og þurfa ekki að rokka sig upp.
Var annars að koma úr klippingu, gerði svosem ekki mikið nema klippa á mig smá topp... Var búin að hugsa um að stytta það frekar mikið en ákvað svo að sleppa því. Ánægð með síddina eins og hún er núna :)
En já, ég verð víst að byrja að pakka!! Ekki seinna vænna... Þannig ég segi bara skemmtið ykkur á klakanum um páskana!!:)

