Vinna vinna vinna

Hæhó

Jæja, prófin búin og ég byrjuð að vinna með gamla fólkinu. Fyrsti dagurinn í vinnunni var frekar leiðinlegur, eða svona, allavega ekki skemmtilegur. En svo næsta dag, þegar ég fékk að gera eitthvað sjálf, þá var þetta miklu skárra og maður fékk aðeins að kynnast gamla fólkinu betur. En núna hef ég náttúrulega bara verið á einni deild af 4 held ég, svo að ég er rétt svo búin að hitta fjórðung af öllu fólkinu þarna! Sjæse...það verður erfitt að muna öll þessi nöfn. En þetta kemur kannski, vonandi... Fer svo að vinna í fyrramálið, búin að vera í 3ja daga helgi sem var æði. Á föstudaginn hittumst við ásta, helena og elísabet heima hjá helenu og fórum í pottinn og svona skemmtilegheit. Daginn eftir dró Sif mig með sér á laugarveginn og við löbbuðum í svona 3 tíma um bæinn og fórum á Mokka og svona. Í gær gerði ég ekki mikið, fékk smá kvef eftir útiveruna daginn áður og var eitthvað slöpp en svo fór ég í bíó um kvöldið með Arnari á Pirates of the caribbean. Hún var alveg ágæt, en var samt frekar mikið rugl og sjúklega löng... Fyrsta myndin var langbest og það hefði ekkert þurft að búa til fleiri finnst mér.

Jájá. Er ekki búin að afreka mikið í dag, amma kom í kaffi áðan og svo var ég að klára að tæma tölvuna mína til að geta sett hana upp upp á nýtt. Er farin að sakna hennar svoldið. Þarf núna alltaf að flakka á milli stóru borðtölvunnar og fartölvunnar hennar mömmu...mér líður eins og ég sé heimilislaus. Neinei ég segi svona. Þetta er ágætt, núna er ég miklu minna í tölvunni :)

Já svo missti ég mig í tiltektinni núna um helgina, fór í gegnum næstum allan skápinn og safnaði saman fullt af fötum sem ég ætla annaðhvort að henda eða selja í kolaportinu eins og við maren vorum búnar að pæla í. Gætum grætt á því.

Sökk líka ofan í Gilmore girls um helgina. Búin að horfa á 5 eða 6 þætti á tveimur dögum. Það er svo skrítið að eiga svona mikinn frítíma :) Svo líst mér svo vel á vaktaplanið, komin með plan út júní og er bara tvisvar að vinna 4 daga í röð, annars alltaf bara 2 eða 3 daga í röð þannig ég hef nægan tíma til að slappa af. Ekki eins og síðasta sumar þegar maður var vinnandi til 12 á nánast hverju kvöldi. Úff mér verður bara illt við að hugsa um það.

En  já ég nenni nú ekki að fara að skrifa einhverja ritgerð hérna, er að hugsa um að halda áfram að taka til eða kannski finna mér eitthvað að horfa á! Ble...
28. maí 2007 klukkan 17:39
Una
Helena skrifar ...
Ég er farin að hlakka til að byrja í skólanum aftur. Mér er alltaf illa við sumarvinnur.
02. júní 2007 klukkan 06:43

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Una
  • Staður: Reykjavík

Auglýsing

Tilvitnun

"To me, it's always a good idea to always carry two sacks of something when you walk around. That way, if anybody says, 'Hey, can you give me a hand?,' you can say, 'Sorry, got these sacks.'"
- Jack Handey

Músík