oui oui
Bara láta vita að ég er á lífi. Datt bara í hug að blogga svona til tilbreytingar.Er hálfnuð með prófin og komin með meira en nóg af þeim. Franskan gekk mjög vel áðan, var samt ekki í neinu stuði til að læra í gær. Frændi minn kom bara og kíkti á tölvuna mína, þarf að fara að taka hana í gegn, og svo horfði ég á Eurovision með öðru auganu. Afskaplega leiðinleg lög. Ég man eftir einu góðu, sem var ekki eitthvað týpískt austur-evrópskt lag. Sé til hvort ég nenni að horfa á þetta á morgun.
Norah Jones er að fara að spila í Höllinni í september. Ég er klárlega að fara, búin að dreyma um það í mörg ár að fara á tónleika með henni :)
Svo er maður loksins kominn með sumardjobb. Fór í viðtal niðri við Dalbraut, þjónustuíbúðir aldraðra, um daginn og var komin með vinnuna daginn eftir :) Ég ákvað að stytta fríið mitt í sumar, ætlaði að fara út í a.m.k. tvær vikur en sá ekki fram á að neinn myndi ráða mig þá í vinnu. Svo að ég fæ eina langa helgi í lok júlí til að skreppa í afmæli til afa míns í DK. En svo þarf ég ekki að vinna nema til miðjan ágúst og hef þá rúma viku þangað til sólinn byrjar. Sem er ágætt. Gæti skroppið út til Emmu þá :) Er annars eiginlega bara farin að hlakka til að byrja að vinna, eignast pening og svona :)
Jæja annars nenni ég nú ekki að hafa þetta langt, veit ekki heldur hvort ég muni blogga hér nokkurn tíma aftur. En ég er allavega farin að lesa Egilssögu.
11. maí 2007 klukkan 16:45
Una
Una

