Jæja, prófin búin og ég byrjuð að vinna með gamla fólkinu. Fyrsti dagurinn í vinnunni var frekar leiðinlegur, eða svona, allavega ekki skemmtilegur. En svo næsta dag, þegar ég fékk að gera eitthvað sjálf, þá var þetta miklu skárra og maður fékk aðeins að kynnast gamla fólkinu betur. En núna hef ég náttúrulega bara verið á einni deild af 4 held ég, svo að ég er rétt svo búin að hitta fjórðung af öllu fólkinu þarna! Sjæse...það verður erfitt að muna öll þessi nöfn. En þetta kemur kannski, vonandi... Fer svo að vinna í fyrramálið, búin að vera í 3ja daga helgi sem var æði. Á föstudaginn hittumst við ásta, helena og elísabet heima hjá helenu og fórum í pottinn og svona skemmtilegheit. Daginn eftir dró Sif mig með sér á laugarveginn og við löbbuðum í svona 3 tíma um bæinn og fórum á Mokka og svona. Í gær gerði ég ekki mikið, fékk smá kvef eftir útiveruna daginn áður og var eitthvað slöpp en svo fór ég í bíó um kvöldið með Arnari á Pirates of the caribbean. Hún var alveg ágæt, en var samt frekar mikið rugl og sjúklega löng... Fyrsta myndin var langbest og það hefði ekkert þurft að búa til fleiri finnst mér.
Jájá. Er ekki búin að afreka mikið í dag, amma kom í kaffi áðan og svo var ég að klára að tæma tölvuna mína til að geta sett hana upp upp á nýtt. Er farin að sakna hennar svoldið. Þarf núna alltaf að flakka á milli stóru borðtölvunnar og fartölvunnar hennar mömmu...mér líður eins og ég sé heimilislaus. Neinei ég segi svona. Þetta er ágætt, núna er ég miklu minna í tölvunni :)
Já svo missti ég mig í tiltektinni núna um helgina, fór í gegnum næstum allan skápinn og safnaði saman fullt af fötum sem ég ætla annaðhvort að henda eða selja í kolaportinu eins og við maren vorum búnar að pæla í. Gætum grætt á því.
Sökk líka ofan í Gilmore girls um helgina. Búin að horfa á 5 eða 6 þætti á tveimur dögum. Það er svo skrítið að eiga svona mikinn frítíma :) Svo líst mér svo vel á vaktaplanið, komin með plan út júní og er bara tvisvar að vinna 4 daga í röð, annars alltaf bara 2 eða 3 daga í röð þannig ég hef nægan tíma til að slappa af. Ekki eins og síðasta sumar þegar maður var vinnandi til 12 á nánast hverju kvöldi. Úff mér verður bara illt við að hugsa um það.
En já ég nenni nú ekki að fara að skrifa einhverja ritgerð hérna, er að hugsa um að halda áfram að taka til eða kannski finna mér eitthvað að horfa á! Ble...
Eitt próf eftir. 1!!! Trúi því varla... þó að síðustu 3 vikur hafi verið sjúkt lengi að líða þá finnst mér samt skrítið að þetta er á enda... og að ég sé að fara að vinna á fimmtudaginn finnst mér enn skrítnara... Þá kemur í ljós hvernig ég spjara mig í þessari vinnu.
Dagurinn byrjaði illa hjá mér. Svaf yfir mig, ætlaði að vakna klukkan 8 og læra en vaknaði svo óvart ekki fyrr en 10. Náði að læra í tæpan 1 og hálfan tíma, ætlaði svo að læra í strætónum á leiðinni í prófið, en þá var strætóinn of course uppfullur af litlum krökkum, þið vitið, eitt af þessum leikjanámskeiðum eða e-ð svoleiðis. Svo að ég þurfti að standa alla leiðina niðrí bæ og gat þ.a.l. ekkert lært. Svo að ég hafði rétt svo 10 mínútur uppi í skóla áður en prófið byrjaði og fattaði svo þegar ég var byrjuð á málfræðihlutanum í prófinu (latínu) að ég gleymdi að læra atviksorðin og stigbreytingu lýsingarorða og atviksorða. Svo að það var mikið giskað á þessu prófi, sérstaklega í þessum blessaða málfræðihluta. Gat samt alveg eitthvað í hinu, svo að ég ætti nú að skríða yfir 4.
Annars hefur mér gengið mjög misjafnlega í prófunum. Best í frönsku og verst í líffræði. Er mjög ánægð með íslenskuprófið, náði ekki að fara yfir nærrum því allt en svo gat ég bara nánast allt í prófinu. Mjög sátt. Svo hefur mér aldrei gengið svona vel í söguprófi, skrifaði alveg heilan helling, misskildi reyndar fyrstu spurninguna og skrifaði tvær blaðsíður um landnám Íslands til einskis. En hitt gekk ágætlega svosem. Já. Annars er ekki mikið að gerast hjá mér þessa dagana. Jú ég fór reyndar á San Fransisco balletinn á laugardaginn og það var alveg sjúklega flott. Sérstaklega síðustu tvö verkin. Gæsahúðin gerði óspart vart við sig.
Jæja, þá er byrjað að snjóa aftur. Ég held það hafi komið öll möguleg veður í gær, ský, rigning, sól, rok, hagl og snjór!! Ekki alveg sátt, hélt það væri að koma sumar... En já, ég ætla að fara að hætta þessu og koma mér í stærðfræðigírinn. Maður verður nú að taka síðasta prófið með stæl.
Bara láta vita að ég er á lífi. Datt bara í hug að blogga svona til tilbreytingar.
Er hálfnuð með prófin og komin með meira en nóg af þeim. Franskan gekk mjög vel áðan, var samt ekki í neinu stuði til að læra í gær. Frændi minn kom bara og kíkti á tölvuna mína, þarf að fara að taka hana í gegn, og svo horfði ég á Eurovision með öðru auganu. Afskaplega leiðinleg lög. Ég man eftir einu góðu, sem var ekki eitthvað týpískt austur-evrópskt lag. Sé til hvort ég nenni að horfa á þetta á morgun.
Norah Jones er að fara að spila í Höllinni í september. Ég er klárlega að fara, búin að dreyma um það í mörg ár að fara á tónleika með henni :)
Svo er maður loksins kominn með sumardjobb. Fór í viðtal niðri við Dalbraut, þjónustuíbúðir aldraðra, um daginn og var komin með vinnuna daginn eftir :) Ég ákvað að stytta fríið mitt í sumar, ætlaði að fara út í a.m.k. tvær vikur en sá ekki fram á að neinn myndi ráða mig þá í vinnu. Svo að ég fæ eina langa helgi í lok júlí til að skreppa í afmæli til afa míns í DK. En svo þarf ég ekki að vinna nema til miðjan ágúst og hef þá rúma viku þangað til sólinn byrjar. Sem er ágætt. Gæti skroppið út til Emmu þá :) Er annars eiginlega bara farin að hlakka til að byrja að vinna, eignast pening og svona :)
Jæja annars nenni ég nú ekki að hafa þetta langt, veit ekki heldur hvort ég muni blogga hér nokkurn tíma aftur. En ég er allavega farin að lesa Egilssögu.
Ó mæ ó mæ...ég er að fara til NY!!! Sjæse... Eftir 7 tíma fer ég í loftið...eftir 13 tíma verð ég að anda að mér amerísku lofti :) Ahh... Skrítin tilfinning. Ætlaði bara að henda inn einni stuttri færslu áður en ég yfirgef landið.
Fór á geðveika tónleika í gær, FORMA-tónleikar til styrktar átröskunarsjúku fólki. Nokkrir spiluðu, m.a. Björk, KK, Lay Low, Mugison og Pétur Ben, og þeir tveir síðastnefndu voru sjúklega góðir!! Ég var alveg eftir mig þegar Pétur Ben var búinn að spila, svo kom Mugison á eftir og hann var geðveikur líka, svo enduðu þeir á að taka Murr Murr saman! Maður bráðnaði alveg :) Takk Helena fyrir að bjóða mér ;) (þú misstir samt af frekar miklu, verð ég að segja!!)
Fór líka um daginn á GusGus tónleikana þar sem Petter & the Pix voru að hita upp, Petter og félagar voru góðir en rokkuðu samt öll lögin sín upp og ég var ekki alveg að fíla það eins vel... Svo hlustuðum við á ca 1 lag með GusGus og vorum þá komin með nóg og létum okkur hverfa. Verð bara að fara einhverntímann á tónleika þar sem Petter spila bara einir og þurfa ekki að rokka sig upp.
Var annars að koma úr klippingu, gerði svosem ekki mikið nema klippa á mig smá topp... Var búin að hugsa um að stytta það frekar mikið en ákvað svo að sleppa því. Ánægð með síddina eins og hún er núna :)
En já, ég verð víst að byrja að pakka!! Ekki seinna vænna... Þannig ég segi bara skemmtið ykkur á klakanum um páskana!!:)
Ég er semsagt komin heim frá Þýskalandi. Fyrir alveg tæpri viku reyndar. Fórum út á sunnudegi fyrir tæpum tveimur vikum og spiluðum svo 7 kvöld í röð, 5 fyrstu kvöldin vorum við að hita upp fyrir bandarísku hljómsveitina Cursive sem er by the way geðveikt band og við lofuðum þeim að gera þá fræga á Íslandi til að þeir kæmu hingað einhverntíman að spila, svo að myspaceið þeirra er http://www.myspace.com/cursive og ég mæli með því að þið tékkið á því, lagið Bad Sects finnst mér eitt af þeim bestu og Óli útsetti það fyrir okkur strengina og við spiluðum það á síðustu tónleikunum okkar með þeim, og þeir tóku svo vel í það að þeir vildu helst fá það með á smáskífu :P En já, við spiluðum í 7 borgum, Berlin, Erlangen, Stuttgart, Köln, Bremen, Munster og Saalfeld... Misgóðir staðir en allt voða gaman samt, en mér fannst síðustu tónleikarnir eiginlega standa upp úr, þar spiluðum við bara ein og það var eiginlega troðið, um 70 manns held ég, og þetta var geðveikur staður, aðeins út fyrir bæinn í stórri, gamalli villu og það var arineldur og kertaljós og svona kósý... Eitt vandræðalegt atvik úr ferðinni. Við vorum frekar sein út á völl á leiðinni út og svo tók okkur a.m.k. hálftíma að tékka okkur inn, þannig við höfðum svona 10 mín. inni á fríhöfninni. Ég náði að versla pínu nammi og kaupa mér að borða, svo þegar ég var að labba langa ganginn að flugvélinni þá vorum við kölluð upp í hátalakerfinu!! Þá voru semsagt allir komnir upp í vél, Arndís náði rétt svo að komast hjá því að vera kölluð upp, en við hin 4 vorum öll kölluð upp og mér leið eins og hálfvita þegar ég labbaði inn í vélina... Samt voru rúmar 10 mín. í brottför, en ég bjóst ekki við því að allir væru svona tímanlegir inn í vél... En þetta var heldur ekki nærrum því full vél þannig það var ekki eins mikið fólk og vanalega. En já, semsagt næst þegar ég fer að fljúga ætla ég að vera tímaleg í því!! Svo erum við bara orðin "fræg", kom grein og mynd af okkur í Moggann daginn áður en við komum heim :P Híhí, svaka gaman að koma í blaðið.
Svo erum við sennilega á leiðinni aftur út í byrjun sumars, myndum þá ferðast milli nokkurra landa, Þýskalands, Frakklands og þar í kring, og vera í rúman mánuð. En það er samt ekki alveg víst ennþá, en ég væri alveg til í að fara aftur út :)
En þetta var semsagt ferðin í hnotskurn, nenni ekki að skrifa meira um hana í bili, en ætla að setja einhverjar myndir inná netið fljótlega...
Síðan er bara vika og einn dagur til New York!!! Sjæse, get ekki beðið :D Ég er búin að vera á fullu að leita að fatabúðum og svona á netinu, á eftir að missa mig algjörlega þarna úti :P En ég keypti allavega nóg af geisladiskum núna í Þýskalandi, 9 stykki, og svo fundum við líka H&M í einni borg og þar náði ég að versla slatta :P
En jæja, ég ætti að fara að gera eitthvað að viti, þarf að lesa heila dönskubók fyrir mánudaginn og þyrfti svo að fara að æfa mig eitthvað... Svo að ég segi þetta gott í bili :)
Ligg hérna uppí rúmi og hlusta á Sufjan Stevens. Langar virkilega út að hlaupa, eða allavega labba. Geðveikt gluggaveður. Fékk frí í 3 síðustu tímunum í dag þannig ég var búin klukkan 11. Næs.
Var heima í gær, hélt ég væri að verða veik, en er samt hress núna. Langar ekki í flensuna og vera rúmliggjandi í viku eins og margir í kringum mig. Ég er allavega ekki búin að fá hana hingað til og vona að ég sleppi. Eyddi öllum gærdeginum í íslenskufyrirlestur. Var búin klukkan hálf 11 um kvöldið. En var ágætlega sátt við afraksturinn. Fyrir utan það að allar myndirnar nema 2 virkuðu ekki í slædsjóvinu mínu. Ömurlegt að vera búinn að eyða tíma í þetta og svo bara virkar það bara ekkert. En þetta er allavega búið. Bara tveir fyrirlestrar eftir, tónlistarsaga og saga.
Á morgun er ég að fara að vinna. Já ég er víst ennþá í símaskránni hjá þeim í Heimamynd. Þau fá alltaf einhverja sem eru hættir til að vinna þegar árshátíðir og myndbandahátíðir eru... Sé pínu eftir því að hafa samþykkt að mæta, en ég fæ allavega pening fyrir þetta. Sem er ágætt.
Svo koma Emma og stelpurnar á miðvikudaginn. Og verða hér í rúman mánuð! Gjéðveiki. Ég missi reyndar af alveg viku með þeim, þegar ég fer til Þýskalands... En það verður vonandi bara gaman þar úti. Mamma er alveg að standa sig í að byggja upp stress hjá mér vegna þess að ég missi úr viku í skólanum. Ég læri bara eins og brjálæðingur þegar ég kem heim... Ekki mun ég læra mikið í páskafríinu, ætla nú bara að njóta NY þá :) Ahh, þetta er yndislegt.
Jæja. Spurning hvort maður byrji eitthvað á sögufyrirlestrinum. Veit ekki rass um þessi Spánverjavíg sem gerðust einhverntíman á 15. öld. Kannski ágætt að afla sér einhverra heimilda.
Árshátíðin var á fimmtudaginn, sama dag og vetrarfríið byrjaði. Byrjaði daginn á því að halda morgunpartý fyrir bekkinn sem heppnaðist bara vel, allir komu með eitthvað gómsætt með sér þannig það var nóg af mat fyrir okkur öll... Svo eyddi ég eiginlega öllum deginum í að dunda mér við að þrífa (tók reyndar smá Prison Break pásur inn á milli). Þreif alla íbúðina hátt og lágt en þegar klukkan var orðin 6 henti ég mér í sturtu og gerði mig til fyrir kvöldið á þremur korterum. Af hverju er ég alltaf á síðustu stundu þegar ég er að gera mig til fyrir ball eða eitthvað þess háttar, sama hvað ég hef mikinn tíma um daginn?? Þetta er bara orðið að venju hjá mér...slæmt mál. En já svo fór ég út að borða með bekknum á Rossopomodoro. Það var pínu misheppnað... Ég missti algjörlega lystina eftir fyrsta forréttinn þannig ég gat ekkert meira borðað nema eitt hvítlauksbrauð sem var ekki einu sinni gott. :/ En eftir að allir voru búinir að borða yfir sig var haldið í fyrirpartý hjá Brynju. Það var bara stuð þar, bara bekkurinn og gestir, örugglega fyrsta skipti sem við höldum partý ein og það var líka frekar skrítið... En samt bara gaman :) Svo fórum við á ballið á Broadway og það var ágætt þar... Stuðmenn héldu uppi stuðinu og stóðu sig ágætlega í því. Samt frekar langt ball, alveg til hálf 3 en ég hélt heim eitthvað eftir 2, þegar mjög margir voru farnir... En uppá heildina var þetta bara ágætis dagur :)
Svo vaknaði ég upp morguninn eftir við hljóðið úr vélsögum, þá voru einhverjir trjákallar komnir að saga niður helling af trém. Klukkan 10 um morgun! Ekki alveg besta leiðin við að vakna daginn eftir ball. Ég allavega gat ómögulega sofnað aftur. Afrekaði ekki mikið þennan dag, var bara heima að horfa á einhverja þætti, skrapp til tannréttingalæknis og svo þarf ég að fara að panta tíma hjá venjulegum tannlækni, held ég sé komin með skemmd... Gat allavega lítið borðað í gær vegna þess að mér var svo illt :( En þetta er samt að skána núna...
Í dag ætlaði ég að vera geðveikt dugleg og byrja á einhverjum af þessum fyrirlestrum sem ég þarf að klára næstu vikur. En ég er varla byrjuð enn. Skrifaði upp pínu texta í íslenskufyrirlestri rétt áðan, en nennti svo ekki meiru. Fór í staðinn í bæinn í dag með Maren og hittum hana Sif. Skruppum í Kolaportið, Gyllta, Rokk og rósir og fleiri staði og ég endaði á að kaupa mér nýja diskinn með Noruh Jones og hárspennur. Svo löbbuðum við framhjá húsi á Laugarveginum þar sem var nýbúið að brjóta glugga og það voru fullt af löggum á staðnum, hef samt enga hugmynd hvað hafði gerst þarna... En það virtist allavega engan hafa sakað. Kannski það komi eitthvað um þetta í fréttunum...
En já. Ég er farin til Sifjar í mat.
Svanapar á Tjörninni
Helenan mín að taka mynd við Nauthólsvíkina
Fugl og dauður fiskur. Nammi.
Bæðevei, búin að setja inn nokkrar myndir frá árshátíðinni hérna til hliðar.
"To me, it's always a good idea to always carry two sacks of something when you walk around. That way, if anybody says, 'Hey, can you give me a hand?,' you can say, 'Sorry, got these sacks.'"
- Jack Handey